Eins og ekki hefur farið framhjá nokkrum manni í dag er mikill snjór. Við notuðum aldeilis tækifærið, þeir sem það vildu, og fórum út að leika okkur (fyrir ofan hús). Í hádeginu sóttum við okkur snjó út, og matreiddum dýrindis eftirrétt - sem samanstóð af snjó og djúsi, endilega skoðið myndirnar.
Ég vil nota tækifærið og láta foreldra vita að færðin við leikskólann er frekar slæm og biðjum við alla að fara varlega.