Í morgun fengum við heimsókn frá heilsuleikskólanum Háaleiti. Í hópnum voru allir starfsmenn leikskólans í vettvangsferð. Starfsfólkið var að kynna sér flæðið hjá okkur eftir lestur greinarinnar sem við sendum í Skólavörðuna. Það var mjög gaman að taka á móti hópnum og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.