Af veðrinu, eins og okkur, er allt gott að frétta. Í vikunni hefur margt verið brallað en hæst stendur að Íþróttaálfurinn kom i heimsókn og lærðum við hin ýmsu spörk og hopp af honum og voru börnin mjög einbeitt í að æfa sig.
Við höfum mikið farið í göngutúra og erum að sjá lífið vakna í kringum okkur. Á miðvikudaginn "millilenti" Mávur í garðinum hjá okkur og spruttu fram hinar ýmsu spurningar um fugla í kjölfarið. Fálkahópurinn fór út í móa og bjó til hljómsveit úr því sem til var í náttúrunni og spilaði og söng.
Við viljum biðja foreldra að koma í lið með okkur og safna ónýtum og úrsérgengnum snyrtivörum, s.s. varalitum, meiki og möskurum. Ætlum við að nýta þetta i að búa til listaverk.
Góða helgi og áfram ísland.