Ferðin gekk vel út, þreyttar en spenntar konur sem lentu á Kastrup kl 06.00 að staðartíma Ráðstefnan var sett í dag með léttum og skemmtilegum fyrirlestrum og gaf það góðan tón fyrir það sem koma skal næstu þrjá daga. Í fyrramálið (fimmtudag) ætlum við í heimsókn á leikskólann Ryvang2 og hlökkum við mikið til að sjá hvernig hann er.
P.s. við hittum Eyþór Trausta á förnum vegi í dag, ásamt fjölskyldu sinni og þótti honum heldur furðulegt að hitta okkur fjórar í Danmörku.
Bestu kveðjur heim Kristín, Magga, Ingunn og Kristín Amelía