Starfsfólk leikskólans

Kristín Gísladóttir er leikskólastjóri. Hún er leikskólakennari, lærði táknmál og er útskrifuð frá virtri danskri stofnun (AOF sprogcentret) í þarlendu tungumáli. Áhugamál Kristínar er lífið og tilveran og allur sá fjölbreytileiki sem upp á er boðið. Þegar Kristín var lítil stúlka í sveit dreymdi hana um að verða djúpsjávarlíffræðingur, tamningakona og smiður.
Kristín vinnur frá 7:45 – 15:30

Margrét Halldóra Gísladóttir sér um sérkennsluna á Uglukletti ásamt því að vera aðstoðarleikskólastjóri, hún er með B.A í uppeldis og menntunarfræðum og B.ed í leikskólakennarafræðum og kennsluréttindi í leikskóla. Magga eins og hún er kölluð hefur mikinn áhuga á námi og jólaljósaskreytingum. Einnig hefur hún gaman af því að ferðast og hefur þó nokkurn áhuga á bílum. Þegar Magga var lítil langaði hana að vera flugfreyja og fornleifafræðingur.
Magga vinnur frá 7:45 – 14:00

Kristín Amelía Þuríðardóttir er leiðbeinandi og sér um stuðning. Hún lauk hússtjórnarnámi með stæl og lagði stund á hársnyrti-iðn. Í frístundum sínum saumar Kristín út, prjónar, saumar og bakar eða eyðir stund í góðra vina hópi. Hún er einnig liðtæk að klippa og greiða vinum og kunningjum. Þegar Kristín var ung dreymdi hana um að verða hárgreiðslukona.

Guðfinna Gísladóttir er leiðbeinandi og sér um stuðning. Guffa eins og hún vill láta kalla sig er fagurfræðingur og hefur tekið þó nokkur námskeið til að efla sig í þeim fræðum. Útivist og mótorhjól eiga einnig hug hennar allan. Þegar Guffa var lítil dreymdi hana um að verða flugfreyja og hárgreiðslukona.
Guffa vinnur frá 8:00 - 14:30

Helga Sif Andrésdóttir er leiðbeinandi og leysir af undirbúning deildarstjóra. Helga starfaði áður sem dagmóðir og hefur mikla reynslu af börnum og barnamenningu. Hennar helstu áhugamál eru prjónaskapur , fjölskyldan og ferðamennska, þá bæði um okkar fallega land svo og önnur lönd. Draumur Helgu hefur ætíð verið að vinna með börnum og er hún því í sínu draumastarfi hér á Uglukletti.
Helga Sif vinnur frá 9:00 - 13:45
Eldhús

Hulda Karítas Harðardóttir er matráðurinn okkar. Karí eins og hún er kölluð hefur allt frá því að hún lauk grunnskóla fyrir nokkrum árum verið heilluð af matseld og góðum mat. Fyrir utan mat og matarmenningu hefur hún áhuga á handavinnu og jólaundirbúningi (líka á sumrin). Karí ætlaði að verða búðarkona þegar hún var lítil stúlka.
Karí vinnur frá 8:00 - 15:30

Freyja Guðjónsdóttir er aðstoðarmanneskja í eldhúsi. Hún hefur lokið nokkrum árum í framhaldsskóla og skóla lífsins. Helstu áhugamál Freyju eru blómaræktun, hundar, og börnin hennar. Einnig er Freyja mikil tónlistarmanneskja og leikur á píanó. Þá hefur hún yndi af lestri góðra bóka og að grípa í prjóna.
Freyja vinnur frá 9:05 – 12:50.
Skessuhorn

Unnur Sigurðardóttir er deildarstjóri á Skessuhorni, hún er menntaður leikskólakennari með rútupróf. Helstu áhugamál Unnar eru rollur og söngur og oft á tíðum sameinar hún þessi áhugamál sín. Þegar Unnur var ung stúlka dreymdi hana um að verða bóndi (hélt að bændur þyrftu ekki að læra að lesa).
Unnur vinnur frá 8:00 – 14:00

Aðalheiður Jóhanna Hjartardóttir eða Allý er leiðbeinandi á Skessuhorni. Allý talar þýsku eins og enginn sér morgundagurinn en þess á milli fæst hún við föndur og ferðalög bæði innan land sem utan. Þar sem að Allý er komin yfir þrítugt þá er minnið aðeins farið að svíkja hana en þó heldur hún að flugfreyja hafi verið draumastarfið þegar hún var lítil snót.
Allý vinnur frá 8:00 – 13:00

Hrefna Ásgeirsdóttir er leiðbeinandi á Skessuhorni. Hún er svæðanuddari en einnig stundar hún saumaskap af miklum móð og má sjá nafn hennar sem búningahönnuðar í leikskrám. Þegar Hrefna var lítil stúlka langaði hana að verða sjávarlíffræðingur.
Hrefna er í fæðingarorlofi.

Vigdís Þorsteinsdóttir er leiðbeinandi á Skessuhorni. Vidda er sjálfmenntaður stangveiði-guide og er með gamla bílprófið (bleika skírteinið). Hennar áhugamál eru veiði en einnig finnst henni gaman að veiða. Þegar Vidda var yngri langaði hana að verða gullsmiður.
Vidda vinnur frá 7:45 – 15:15.

Guðrún Jónasdóttir
er leiðbeinandi á Skessuhorni en einnig leysir hún af hin flestu störf á leikskólanum. Guðrún er sjálfmenntuð í uppeldi og á átta börn og rútufarm af barnabörnum. Áhugamál Guðrúnar eru dundur hverskonar. Guðrún var strax ákveðin áður en að hún sleit fyrsta parinu af gúmmískóm (hétu þá sauðskinnsskór) að vera hún sjálf.
Guðrún vinnur frá 9:00 - 16:30.

Sæunn Kjartansdóttir er leikskólakennari á Skessuhorni. Hennar áhugamál eru útivera hvers konar, hestar, kajaksiglingar, köfun, nestisgerð, ferðamennska og snjóbretta og lestur. Sæa eins og hún er kölluð er mennaður leikskólakennari og jógakennari. Þegar hún var yngri dreymdi hana um að verða dýralæknir eða sjómaður.
Sæa vinnur frá 8:30 - 16:00
Amelía Cristine er ung menntaskólamær á lokunarvakt á Skessuhorni. Hún vinnur frá 15:00 -16:15.
Gréta Bogadóttir vinnur á Skessuhorni frá 9-12.
Paradísarlaut

Elín Friðriksdóttir er deildarstjóri á Baulu. Hennar áhugamál eru líkamsrækt, skemmtilegt fólk og hundar (væntanlega skemmtilegir). Elín ætlaði að verða lögga eða leikari þegar hún var lítil.
Elín vinnur frá 8:00 - 15:30.

Dröfn Traustadóttir er leiðbeinandi á Baulu ásamt því að sjá um tónlistarstundir á miðvikudögum. Dröfn er útskrifuð úr skóla lífsins og hálfnuð með söngnám. Hún elskar alla tónlist, og hefur einnig mikinn áhuga á börnum og barnamenningu. Þegar Dröfn var ung stúlka ætlaði hún að verða söngkona.
Dröfn vinnur frá 8:30 - 14:00

Anna Jónsdóttir er leiðbeinandi á Baulu. Anna er sjálfmenntaður uppeldisfræðingur enda margra barna amma. Hún er einnig með gamla bílprófið. Útivist á hug hennar allan, og segja sögur að hún hafi fundið upp telamark-sveifluna á sínum yngri árum fyrir vestan. Þegar Anna var ung dreymdi hana um að verða fallhlífastökkvari og sá draumur blundar víst enn.
Anna vinnur frá 9:00 – 14:00

Ágústa Óskarsdóttir, er leikskólakennari á Baulu. Hún er mikil áhugamanneskja um íslensku sauðkindina og svokallaður hobbý-bóndi í sínum frístundum. Ásamt kindunum er hestamennskan hennar helsta ástríða. Ef að Ágústa er ekki að hugsa um kindur eða hesta helstu "blubbtölur" eða stóðhestadóma eru ferðalög og að njóta íslensku náttúrunnar í faðmi ört stækkandi fjölskyldu sinnar eitt það besta sem hún veit.
Ágústa er í fæðingaorlofi.

Pálína Guðmundsdóttir er leiðbeinandi á Baulu. Pála eins og hún er kölluð er mikil útivistar og hestamanneskja. Einnig sinnir hún öðrum hugarefnum eftir árstíðum. Hún er saumakona mikil, föndrar og málar og töfrar fram sólpalla með annarri hendinni. Þegar Pála var yngri dreymdi hana um að verða hestakona.
Pála vinnur frá 9:00 - 12:45.

Sigrún Sveinsdóttir er deildarstjóri á Grábrók. Sigrún er grunnskólakennari en einnig er hún með Diplomu í rekstrarfræði og annálað blómanörd. Útivist er eitt af áhugamálum Sigrúnar enda hefur sést til hennar hlaupa upp um fjöll og firnindi víða um land. Sigrún gefur sér þó tíma til að sinna handavinnu, menningu og listum inn á milli. Þegar Sigrún var yngri dreymdi hana um að verða íþróttastjarna.
Sigrún vinnur frá 8:00 - 13:40

Inga Hólmfríður Gunnarsdóttir er leiðbeinandi á Grábrók. Hún má keyra bíl og kann að bakka með kerru. Hún hefur mikinn áhuga á prjónaskap en prjónar þó helst á sjálfa sig. Menning og listir eiga þá líka vel við hana og þá helst leiklist, en einnig les hún stjörnuspár. Þegar Inga var lítil stúka ætlaði hún að verða hárgreiðslukona.
Inga vinnur frá 8:10 – 15:00

Sylvía Ósk Rodriguez er leiðbeinandi á Grábrók. Sylvía hefur lokið stúdentsprófi og er einnig menntaður einkaþjálfari frá ÍAK. Hún er sveitastelpa og sinnir fjósi og sveitastöfum í sínum frítíma auk þess að vera ofvirk í líkamsrækt. Sylvíu finnst fátt betra en að vera í góðra vina hópi (upp í sveit). Þegar Sylvía var lítil dreymdi hana um að verða búðarkona og flugfreyja.
Sylvía vinnur frá 9:00 - 16:15
Ólöf Sunna Gautadóttir er menntaskólamær á lokunarvakt á Paradísarlaut. Hún vinnur frá 15:00 - 16:30.