Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
25. janúar 2012

Þorrablót.

Þriðjudaginn 24. janúar héldum við Þorrablót með pomp og pragt á leikskólanum.  Börnin voru búin að gera hjálma og sungnir voru þorrasöngvar.  Í hádeginu borðuðum við öll saman í salnum.  Í boði var grjónagrautur og slátur auk þess fengum við flatkökur, hangikjöt, hvalrengi, hákarl, sviðasultu, svínasultu, síld og margt fleira.  Flestir voru duglegir að smakka þó að sumt hafi ekki farið lengra en það. 

Endilega kíkið á myndir.

meira...
18. janúar 2012

Bóndadagur

Föstudaginn 20. janúar nk. er BÓNDADAGUR þá er hefð í Uglukletti að börnin bjóði pöbbum, öfum, bræðrum og frændum í morgunkaffi frá 8.30 til 10.00. Við vonumst til þess að sjá sem flesta. 

meira...
6. janúar 2012

Framlag foreldra

Í vikunni bauð Hrafnhildur mamma, Valborgar börnunum að koma í garðinn hjá sér og fá kakó og piparkökur. Í desember kom Ragnhildur mamma Margrétar til okkar með sveitakynningu. Það er mjög ánægjulegt fyrir alla í leikskólanum að fá svona framlag frá foreldrum. Við þökkum kærlega fyrir okkur og minnum á að allar góðar hugmyndir frá foreldrum eru velkomnar. Myndir frá viðburðunum er komnar inn.

 

Vikan er búin að vera viðburðarík, á dótadaginn var mikið fjör, Dröfn sá um að dansa og syngja álfasöngva í tónlistinni á miðvikudaginn og sökum hálku tókum við þann kost að vera inni fyrir hádegi á föstudag og horfa á mynd í salnum. Fórum svo út í snjóinn eftir mat.

 

Óskum öllum góðrar helgar.

 

Von er á fleiri myndum eftir helgi, álfarnir komnir í tölvukerfið...

meira...
30. desember 2011

Áramótakveðja

 

Áramótakveðja

 

Við sendum öllum okkar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þökkum fyrir liðið.

 

Við hlökkum til að takast á við ný verkefni á komandi ári með leik, virðingu og gleði að leiðarljósi.

 

 

 

 

meira...
23. desember 2011

Jólakveðja frá Uglukletti

 

Jólakveðja

 

Óskum öllum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það sem best næstu daga.

 

Jólakveðja frá öllum í

Uglukletti

meira...
16. desember 2011

Jóla, jóla

 Í gær voru litlu jólin í leikskólanum. Börnin á Grábrók buðu öllum í leikskólanum að sjá sýninguna Dimmalimm um morguninn, síðan fengu allir ljómandi góðan hádegisverð og eftirrétt.

Eftir hádegið komu aðstandendur barnanna á Grábrók á sýningu hjá börnunum og í beinu framhaldi var svo jólaball skólans þar sem fjölmargir foreldrar, afar og ömmur og systkin létu sjá sig. Margir tóku þátt í að ganga í kringum jólatréð og jólasveinar komu á svæðið.

Vikan er búin að vera mjög viðburðarík og skemmtileg en nú líður að jólum og við reynum að taka því rólega í næstu viku og dunda okkur við eitt og annað.

 

 

Töluvert magn af myndum er nú komið inn á síðuna.

 

meira...
15. desember 2011

Duglegir krakkar

Á þriðjudaginn hjálpuðust allir að við bakstur. Börnin gerðu smákökur sem þau ætla að bjóða upp á þegar jólaballið fer fram. 

Á miðvikudaginn fóru börn fædd 2007 og 2008 í íþróttahúsið og skemmtu sér mjög vel. Það voru allir mjög kátir en þreyttir við komuna til baka í leikskólann.

Við þökkum Grunnskólanum fyrir að taka vel á móti okkur og þá sérstaklega stelpunum í 6. og 10.bekk og Dódó íþróttakennara.

 

Myndir væntalegar.

meira...
9. desember 2011

Á næstunni

Í næstu viku verður nóg um að vera í Uglukletti. Á þriðjudaginn ætla allir að hjálpast að við að baka jólasmákökur.

Á miðvikudaginn fara börn fædd 2007 og 2008 í leikfimitíma með stelpum í 10. bekk í Grunnskóla Borgarness (foreldrar fá tölvupóst í næstu viku um nánara skipulag). 

Á fimmtudaginn höldum við litlu jólin í leikskólanum. Karí og Freyja töfra fram jólasteik í hádeginu og  kl:14:30 er foreldrum boðið að koma á jólaball og dansa í kringum jólatré við undirleik sem Steinunn Pálsdóttir sér um. Mögukleiki er að rauðklæddir karlar verði á ferðinni hjá okkur og gleði okkur með nærveru sinni.

Þennan sama dag ætla Fálkar að bjóða foreldrum sínum á leiksýningu sem þau hafa verið að vinna að undanfarnar vikur, en foreldrar haf nú þegar fengið boðskort frá börnunum.

 

Vonum að allir eigi góða helgi og hlakki til komandi viku.

meira...
Þorrablót 2012